Enn einn mánuður er liðinn af dvöl minni á Möltu, sem þýðir að eftir aðeins
einn mánuð verð ég á leið til Danmörk. Það verður erfitt að fara héðan, lífið
er dans á rósum hér J />
Síðasti mánuður hefur verið viðburðarríkur og erfitt að muna allt sem er búið
að ske... maður upplífir einhvern vegin svo mikið að maður tapar þræðinum
stundum. En hér koma nokkrir punktar. />
·
Ég var
veik í nokkrar daga.. fékk sýkingu í ennisholunar en þökk sé lækna vísindunum þá
fékk ég pensilin og er orðin fjall hress aftur. .... voru nokkrir dagar í helvíti... />
·
Er
búin að vera í 2 vikna verknámi á barna deild sem var mjög áhugavert en líka
erfitt, sérstaklega erfitt að horfa upp á svona litla krakka með mörg og flókin
vandamál. Maður finnur til í hjartanu en maður venst þessu eftir 1 vikuna var ég
alveg viss um að ég gæti ekki unnið inn á þessu svíði en seinni vikuna var mér
bara farið að líka þetta ágætlega. />
·
Ég er
farin að kenna Pilates einu sinni í viku hér ... sem er mjög gaman. />
·
Nicole
sem býr í sama húsi og ég er farin að kenna okkur Hip Hop og við notum hvert
tækifæri í Paceville (skemmtistaða hverfi) um helgar til að æfa okkur á og sýna hvað í
okkur býr eða allavega reyna það.......... />
·
Um
daginn skruppum við á pöbba tölt til að fagna St. Patricks day, þar sem við
vorum keyrð á milli bæjarhluta og pöbba í 60 manna rútu með tónlistina í botni
og allir dansandi eins og vitleysingar... Fórum í Karoky þar sem við fundum út
að við vorum mismunandi hæfileikarík en skemmtum okkur svaka vel og tókum smá
videó ... Enduðum kvöldið á að fara í bakari og kaupa okkur nætursnakk sem var borðað
í eldhúsinu í 105 íbúðinni minni meðan aðrir fóru til Paceville og djömmuðu
fram á nótt. />
·
Síðan
byrjaði páskafrí og Einar Logi kom í heimsókn í 11 daga .... Páskafríið er búið
að einkennast af afslöppun, sólbaði og ferðalögum, þar sem áhugaverðustu staðir
Möltu hafa verið skoðaðir ásamt þess að farið var í smá helgarferð til Gozo og
Comiono sem eru systureyjur Möltu. Við fórum til Gozo 7 saman, gistum á hosteli
sem var munaðarleysingjahæli, vorum með einkabílstjóra, fórum um nánast allt,
skemmtum okkur konunglega og urðum sólbrunnin. />
·
Á leið
okkar frá Comino til Gozo var þónokkur öldugangur og það var æðislegt að finna
vindinn í hárinu, sólina brenna á manni húðina og láta sjóinn gusast yfir okkur
með græjurnar í botni og á hraðbát á fleygiferð... sumir urðum að skipta um föt
þegar komið var í land er ferðin var æðisleg .... />
·
Skipulögð
gönguferð með 100 manna hópi frá Popay þorfinu til Golden bay sem er strönd og á
3 aðrar strendur. Popay þorpið var byggt til að taka upp stjána bláa í því svo
það er á dagskrá að sjá myndina.. />
·
Kökupartý
í 105 sem 2 x brownies, snikers köku, hafragrjónskökum, ferskum jarðaberjum, ananas
og döðlukökum.... í eldhúsinu hjá okkur er alltaf fjör og nóg af sætindum. />
·
Einar
Logi er svo farinn aftur heim til DK í tóma íbúð honum langaði ekki mikið að
yfirgefa þetta luxus líf hér.... ég bý á stúdentagarði með 200 skiptinemum,
standlausum partýum ef maður vill, matarboð eða kökupartý í hverri íbúð, frábærir
krakkar, tennis, sól, sundlaug, semsagt eins og í ameríski bíómynd. />
·
Fór á
fyrirlestur áðan á Boffa sjúkrahúsinu sem ég var á fyrstu vikurnar í verknámi hér
á Möltu og leit við hjá sjúklingunum mínum sem voru himinsælir að sjá mig
hentus næstum út, úr rúmmunum til að sýna mér hvað þeir geta núna og þeir vissu
ekki alveg hvort þeir ættu að gráta eða hlæja... að hitta þetta fólk aftur og
sjá framfarirnar er ólýsanleg tilfinning.. hjartað slær hraðar, adrenalínið
pumpasat um líkaman og maður yfirgefur svæðið með fast bros á andlitinu (sem á
eftir að vera fast í nokkra daga) og góðar minningar sem fylgja manni áfram og
gefa manni orku. />
·
Er að
fara aftur til Boffa sjúkrahúsið á morgunn að hitta fólkið sem ég var að vinna
með og spjalla víð sjúklingana.... skreppum svo á kaffihús á eftir. />
·
Er
svo að fara í 3 vikna verknám á St. Lukc sjúkrahúsinu þar sem fókus verður á
vöðva og beinagrinda vandamál sem er mjög áhugavert, verður örugglega ansi anna
samar 3 vikur. />
·
Svo tekur
við 1 vika af lærdómi eða fríi til að verða sólbrún fyrir heimferðina til DK
langar að fara yfir til Karó að skoða pýramídana en það er bara svo litið dýrt
en stutt flug héðan, aldrei að vita hvað maður gerir ????? />
Það er fullt af hlutum í víðbót gæti skrifað í alla nótt en ég nenni því
ekki þið mynduð gefast upp á að reyna að lesa það .......... ég er bara alveg ólýsanlega
hamingjusöm hérna og líður mjög vel. />
Hér koma þónokkur myndabrot og smá videó ..... XOXOXXOOXO />
Myndir:
St. patrick´s day in Malta Páskafrí myndir Ferðalagið til Gozo og Comino Samansafn af myndum frá PartýiumVidó - upptökur:
karoky - Barbie´s and Ken´s .. nr 1 karoky - Barbie´s and Ken´s .. nr 2