2 mánaða sumarfrí er himneskt og gæti orðið vanabindandi...
Sumarfríið hófs á interrail ferð til Austur Evrópu þar sem farið var frá Danmörk til Póllands – Tékklands – Austurríki – Slóvakíu – Slóveníu – Ítalíu – Króatíu – Ungverjalands – Danmörk og svo loks Íslands á aðeins 17 dögum.
Pólland
Warsaw
Laugardaginn 14 júlí flugum við frá Köben til Warsawa höfuðborg Póllands. Þar sem dvalið var í 2 nætur. Fyrsti dagurinn fór að skoða bæinn og allar merkilegustu byggingar hans sem eru voru ekki fáar og ekki litlar þetta er ofboðslega flott borg með mikið að flottum görðum og húsum. Borgin var gjöreyðilögð í seinni heimsstyrjöldinni hún var sprengd niður til grunna en Pólverjar létu ekki deigan siga og byggðu flest allt upp aftur eins og það var upprunalega, ótrúlega magnað hjá þeim. Við fórum í gamla hverfið og það er svo flott, það er gamall virkisveggur utanum það og þar var mikið að fólki, hundum og betlurum en þeir voru allir flottir komnir í spes búninga og sátu á götuhornum, þar voru líka mikið að blómum, flott tónlist, brúðarhjón við hverja kirkju. Í gamla bænum verður maður ástfanginn af Póllandi
Seinni daginn í Póllandi röltum við meira um og fórum líka í svaka flottan garð og notuðum næstum allan daginn í að rölta þar um. Í garðinum var grískt leikhús, flott hús, vatn og allskonar dýr. Ég gerði meðal annars tilraun til að gefa íkornum hnetur eftir að gamall maður gaf mér hnetur til að gefa þeim þar sem ég horfi hugfanginn á hann gera það.

Þarna er hæsti klukkuturn í heimi sem er i Warsawa

Óperuhúsið í Warsawa

Við minnisvarðan, það þegar Pólverjar risu upp á móti Þjóðverjum sem þeir töpuðu og misstu mikið af fólki.

Hluti af gamla bænum eða virkismúrinn sem liggur um gamla bæinn

Gríska leikhúsið

Gosbrunnur í einum garðinum

Við í einum garðinum

Pólverjar gera ekkert litlar auglysingar
Krakow – Auschwitz – Krakow
Um nóttina var svo haldið til Krakow en þegar við komum þangað var dótinu hent í geymslu og hoppað upp í næstu lest til Auschwitz (útrýmingarbúðir nasista). Þar fórum við í skipulagðan túr um svæðið eða bæði til Auschwitz og til Birkenau. Óhætt er að segja að enginn fer ósnortin frá þessum stöðum það er ótrúlegt hvað fólk getur verið grimmt hvort við annað. Þetta var ógeðsleg starfsemi sem fór þarna fram og alveg hræðilega skipulögð en enginn sem fer þarna um ætti að sleppa því að fara.
Inn á svæðinu er meðal annars hægt að sjá það sem fólk tók með sér þar eru svo margar ferðatöskur, greiður, gleraugu, burstar, skór og gerviútlimir. Maður verður að muna að hver og einn tók það mikilvægasta og vermætast með til að hefja nýtt líf, fjölskyldu arf og framvegis. Þar sem fólk stóð í þeirri trú að þarna yrði það óhult og fengi fullt af tækifærum til betra lífs enda var búið að ljúga því að aumingja fólkinu sem endaði svo lífið þarna, markmiðið var að fólk myndi deyja á innan við 3 mánuðum eftir komu, sem var gert með að svelta fólk og þræla því út í vinnu. Þarna voru til sýnis 2,5 tonn af mannshári en það var meðal annars nýtt til að gera teppi út sem mér fannst ógeðslegt. Við fórum og skoðuðum allt svæðið húsin, klósettin, brennslu ofnana, refsiklefana osv..
Við vorum 6 tímum þarna inni fyrst fórum við í skipulagðan túr og svo löbbuðum við um svæðið til að skoða betur og taka myndir. Held að fólk geri sér enga grein fyrir hversu stórt svæðið er fyrr en það fer þangað. Hér koma nokkrar myndir þaðan

Í Auschwitz á hliðinu stendur Arbeit nacht freit eða vinnan mun frelsa þig... sem er var að vissu leyti satt þar sem fólki var þrælað út þar til það dó og dauðinn var kannski viss frelsi á þessum stað.

Aftökuveggurinn í Auschwitz

Klósettin (Þarna inni var mikið að skjölum falin og eins smiglað á milli fólks )

Þetta er einungis smá hluti af svæðinu maður sér glitta í gamlar húsarústir svo langt sem augað eyjir
Um kvöldið fórum við aftur til Krakow en þar hittum við fullt að frábæru fólki á innan við klukkutíma á information var okkur sagt að elta einn strák sem var að fara að taka sama strætó og við en við vorum 4 að elta hann (líka 2 skoskar stelpur), við tókum strætó en fundum ekki stoppið okkar og fórum því að spyrja bilstjórann og hann greip bókin af Einari Loga og keyrði af stað svo á næsta stoppi sagði hann að við værum að fara í vitlausa átt og ekki nóg með það hann stoppaði vagninn, fór út dró okkur út og fylgdi okkur næstum að stoppistöðinni hinum megin við götuna og allir í strætónum gláptu á okkur. Þegar við fundum hostelið þá beið stelpan í afgreiðslunni eftir okkur en hún átti að vera löngu búin að vinna samt gaf hún sér tíma til að spjalla við okkur segja okkur frá öllum áhugaverðustu stöðunum og láta okkur fá kort. Í Krakow var rölt um bæinn horft á flottasta breik ever þeir voru svo færir strákarnir sé svo eftir að hafa ekki tekið vídeó. Við fórum líka í Schindlers faktori en Schindler bjargaði fullt að gyðingum með að redda þeim vinnu í verksmiðjunni sinni ansi góður karl það er til mynd um þetta sem heitir Schindlers list.

Allstaðar voru Kastalar

Við vorum ekki þau einu sem fannst heitt

Eitt og annað var til sölu í Krakow
Við fórum í Salt námu en þar fórum við niður á 135 m dýpi og í henni er fullt að fólki og dýrum skorið út í salt og öll þessi listaverk utan við 3 voru gerð að námumönnum sem unnu í námunni. Í námunni eru nokkrar kapellur og það tók 68 ár að gera eina þeirra og voru það aðallega 3 menn sem gerðu hana. Þar var einnig kapella sem maður þarf að sigla úti en þar það var ekki boðið þar sem bát hvolfdi þarna einu sinni með nokkrum hermönnum innanborðs, vatnið er svo salt að þeir gátu ekki drukknað en þeir köfnuðu þar sem þeir voru undir bátnum og gátu ekki synt undan honum vegna styrk saltsins í vatninu. Veit ekki alveg hvað ég á að segja um námuna hún var svo flott við sáum einungis 1% af henni sem var stórt en það hefur engin vinnsla verið í henni í 11 ár. Einnig skoðuðum við kastala hverfið í Krakow það er flott mikið að risastórum tignalegum húsum og söfnum svo við vorum hálfan dag þar. Frá Krakow var svo haldið með næturlest til Prag, ég keypti fullt af Pólskum smákökum til að borða um nóttina sumar voru svaka góðar. Lestarferðin var skrautleg eins og áður hefur komið fram í bloggi þar sem við vorum með skuggalegu gaurunum í klefa og Einar Logi strappaði bakpokann fastan við tánna á sér eftir að þeir fóru í annan klefa.

Ekki skorti þessum námumönnum hæfileikana. Stytturnar eru úr salti

Síðasta kvöldmáltíðin: mynd í einni kapellunni og hún er einungis 7cm inn en virkar mikið dýpri
Af öllum löndunum þá kom Pólland mest á óvart það var svo vinalegt er mjög flott land og með rosalega sögu.
Tékkland
Prag var tekin á einum degi og það var svo sannarlega dagur tappana....
Prag er flott borg sem iðar af mannlífi en okkur nægði alveg einn dagur enda var valla stoppað byrjuðum á að röltum niður í bæ, um miðbæinn, gyðingahverfið að gamla gyðinga kirkjugarðinum þar sem fólki var staflað ofan á hvort annað sökum plássleysis og því legsteinar út um allt. Löbbuðum að ánni og brúnum þar lá leiðinn upp með ánni og að Charlis brids sem er aðalbrúin þeirra þar voru svo margir listamenn að teikna fólk og allskonar sölufólk. Eftir það lá leiðinn upp í kastalahverfið en það skoðuðum við nenntum samt ekki að fara á öll söfnin fórum upp í svaka turn í kirkjunni en það voru um 300 tröppur upp en útsýnið var líka flott. Síðan var tekið stefnuna á Effelturninn eða mini útgáfuna af honum og þar voru ekki færri tröppur og þar sem hann var upp á hæð þá fengum við enn betra útsýni þar. Tókum svo kláf niður í bæ og fundum upplýsingar um lest til Vin sem fór ekki fyrr en eftir 4 tíma svo við skelltum okkur út borða og á internet kaffi. Að lokum var farið í sturtu á lestarstöðinni í Prag sem var ekki sérstök allavega gott að vera með eigin handklæði þar sem afgreiðslu fólki átti það til að vera að þvo sér og taka svo handklæðin þurrka sér í þau, brjóta aftur saman og setja í bunkann hjá hinum handklæðunum sem við myndum borga fyrir að fá lánuð. Inn á klósettinu fyrir utan sturtuklefann minn sváfu svo tvær unglingstúlkur á pappakössum, mér datt ekki í hug að segja frá þeim enda öruggari þarna en á götunni. Á leið til Vinar lentum við með pari frá Sviðþjóð í klefa, þurftum einu sinni að skipta um lest en sváfum annars í mesta lagi í 4 tíma á leiðinni.

Prag með Effelturninn í fjarska

Horft yfir Prag
Austurríki
Byrjuðum á að finna okkur hostel þar sem við vorum ekki búin að sofa mikið síðustu 2 nætur og þreytan farin að segja til sín. Sænsku krakkarnir (Anton og Lisa) fóru með okkur en þau voru bara búin að lenda á ógeðslegum hosteli með kakkalökkum og nota heilan dag í að leita að hosteli en við fórum bara á netið fundum eitt fórum þangað, það var laust, hentum dótinu inn og lögðum svo af stað í bæinn. Við vorum allan tíman í Vin með Antoni og Lisu byrjuðum stoppið ávaxtamarkaði fengum okkur bestu bláber og hindber í heimi. Fórum svo í bakari og borðuðum lúxus morgunmat samlokur og köku (samlokurnar voru geggjaðar með fullt af grænmeti eins og í þýskalandi). Svo lá leiðin í leit af vinekrum svo við tókum strætó og við Einar logi sofnuðum alltaf þegar við settumst niður í almenningssamgöngunum þennan dag. Við fundum sundlaug og vinakra skoðuðum þá smá og smökkuðum vinberin sem voru heldur súr. Fórum svo aftur í bæinn en það var svo heitt að það var ekki bara hægt að labba um svo ákveðið var að kæla sig með svaka ís og svo að skella sér í dóná, en það er nú meiri drullupollurinn syntum samt smá þar. Þarnæst var farið í áttina að dýragarðinum en hann var í útjarði svaka flotts garðs með kastala. Það var svo dýrt inn í garðinn og hann alveg að fara að loka svo við ákváðum að labba bara um hinn garðinn og vá þvílíkur garður hann var geggjaður fullt af gosbrunnum flottum trjám, kastali og aðrar byggingar styttur og fleira vorum heillengi að labba um þarna hefði svo ekki vilja missa af þessu ...
Enduðum svo kvöldið á veitingastað í hverfinu okkar sem var alveg magnað góður matur og æðisleg stemming. Vorum komin heim um klukkan 22:00 allir dauðþreyttir og sumir fótsárir greiið Lisa gat valla gengið var með svo mikið af blöðrum og sárum. Allir fóru í ískalda sturtu sem var himneskt og svo var farið að sofa og ég svaf í 11 tíma sem hefur bara held ég aldrei gerst áður en var líka úthvíld næsta dag. Næsta dag skiluðum við herberginu fórum og fengum okkur morgunmat öll saman en svo skildu leiðir þar sem við vorum að fara til Bratislava og þau til Amsterdam.

Lúxus morgunmatur

Vinberja akrarnir í Vin

Anton og Lisa á vinberjaakrinum

Þau voru flott en svo lítið súr

Við, við kastala í Vin

Ef þessi var ekki góður í 37° hita, fæ enn vatn í munninn

Ég, Lisa og Anton að busla í Dóná

Einar Logi fór líka í drullupolinn, Dóná eftir smá umhugsun.
Slóvakia
Þar var 5 tíma og 35 mín stopp en mikið skoðað... labbað og labbað og labbað....
Bratislave er flott borg Dóná rennur í gegnum hana eins og svo margar aðrar. Þar sáum við sporstrætó sem fór útaf sporinu í beygju en bílstjórinn fór bara út og kippt því í lag. Röltum með sjónum fórum upp í útsýnis pall sem var 195 m hár og þar sást vel yfir borgina. Löbbuðum um gamla hverfið sem var mjög vinalegt vorum á hraðferð að ná næstu lest aftur til Austurríkis (Vin) og svo til Slóveniu. En við misstum næstum af lestinni til Sóveniu þar sem þeir voru búnir að skipta um spor og eftir miklar vangaveltur og þó nokkra spretti í upplýsingar, var hoppað upp í lest og vonað það besta og það gat ekki orðið betra þetta var rétt lest.
Hluti af borginni og Dóná
og meira af borginni

Sporstrætóinn sem fór út af sporinu
Ég og flottur gamall kastali
Einar Logi að kæla sig í gamla bænum í Bratislava

Já hvað á að seigja flott mynd hjá mér og svaka sætur strákur
Slóvenia
Loksins FJÖLL , þvílík fegurð vildi helst ekki loka augunum.
Ferðin var frá Vin – Villach – Lubljana og i Villach var þó nokkur seinkun á lestinni og ég kepptist við að halda mér vakandi og passa dótið á meðan Einar Logi svaf. En svo skiptum við seinna um nóttina. Um morguninn þegar við komum til Lubljana röltum við aðeins í bæinn (bærinn heillaði okkur strax) en tókum svo lest í dropasteinshella en þangað var klukkutíma lestaferð þeir voru mjög fallegir en höfðu ekki alveg til okkar. Okkur langaði bara aftur til baka að skoða bæinn. Hittum samt ansi hressan gaur sem mæli gæði landanna eftir því hvað marga bjór maður gæti fengið fyrir 1 dollara. Honum fannst heldur ekki leiðinlegt að segja sögur að sjálfum sér og er búin að ferðast mjög mikið og lenda í ýmsu. Við röltum með honum niður í bæ og skelltum okkur í smá rigningu en á torginu í Lubljana er tilbúin rigning þar sem þar er úðari á vírum fyrir ofan torgið og í miklum hita var alger snild að kæla sig þar. Eftir það skildu leiðir við vin okkar og hann fór á barinn en við að skoða. Fórum upp í kastall og turn og VÁ þar var að lita Alpana sem gnæfðu upp í loftið í fjaska þar verð ég að fara einhvertíman. Eftir að hafa labbað um bæinn kælt sig í gosbrunnum og keypt af skransölum fórum við út að borða og fengum okkur steik. Þar næst var haldið á lestastöðina þar sem allt var lokað og 4,5 tímar í næturlestina svo við ákváðum bara að læsa dótið okkar inn í skáp og troða innaná veskjunum lengra inn á okkur og fara að sofa. Þannig að við breiddum úr flísteppi á götuna bakvið lestastöðina eða milli lesta stöðvarinnar og teinana, stilltum verjaraklukku stungum eyrnatöppum í eyrum og fórum að sofa. Mér var nú bara hugsað eins gott að mömmur okkar sjá okkur ekki núna. En þegar við vöknuðum voru fullt af krökkum sofandi út um allt að biða eftir sömu lest og við

Elska þessa borg

Vá hvað ég væri til í að búa þarna

Við svaka sæt með ALPANA í bakgrunn

Á lestastöðinni í Lubljana, ekki datt mér í hug að nokkrum tímum seinna myndum við sofa þarna.

Dropasteinn

Meiri dropasteinn
Ítalía
Feneyjar/Venis já hvar á maður að byrja..... vorum þarna í einn dag eða 11 tíma.
Þetta er allt öðru vísi en allar aðrar borgir bátar í stað strætóa og lesta, sjór í stað gatna en samt sem áður eru engar smá byggingar þarna við röltum um tókum myndir, borðuðum pizzu og ís. Fórum í næstum 2 tíma bátsferð með strætó bátnum fórum bara alla leið með honum til að skoða okkur um, fórum til annarrar eyju þar sem Einar Logi var að taka myndir og ég svaf við einn gosbrunnin á meðan. Fórum svo í kjörbúð og keyptum okkur í nestið þar fann Einar Logi uppáhalds kexið sitt og varð þegar í stað ástfanginn af Ítalíu.
Sé sko ekki eftir að hafa farið til feneyja en myndirnar segja allt sem segja þarf.



Feneyjar í allri sinni dýrð...
Króatia (Splitt)
Eftir 3 næturlestir í röð og 3 daga án sturtu þá var gott að komast í íbúð í Króatíu í sturtu og rúm. Fæturnir á Einari Loga voru ornir ansi þrútnir af því að sofa sitjandi í lestinni í 3 nætur það sást ekki móta fyrir neinum beinum eða neinu, svo við gerðum æfingar til að auka bláæða blóðstreymið í fótunum og lyftum þeim og það bar árangur. Við vorum í Splitt í 3 nætur og fyrstu 2 dagarnir fóru í að vera á ströndinni ég var svo illa bitin af moskitó á vinstri ökklanum að ég gat vall labbað fyrsta daginn var með 6 bit bara á ökklanum og ofnæmisviðbrögðin létu ekki standa á sér. Þannig að við fórum á ströndina láum í sólbaði, syntum í sjónum, borðum 2-3 ísa á dag og slöppuðum af. Síðasta daginn var dótinu hent í geymslu og tekið nokkra klukku tíma rölt um nágreni Splitt sem var mjög fallegt, fullt af flottum ströndum, snekkjum, bátum en það flottasta var Hrafn sem við rákumst á. Hann kom fljúgandi að vatnshana sem var skrúfað frá og var að fá sér að drekka og Einar Logi spurði hvort ég ætti ekki eitthvað handa honum og þá fór ég í töskuna að ná í saltstangir og skrjáfið í pokanum vakti geynilega athygli dýrsins því áður en ég vissi var hann næstum komin með hausinn ofan í bakpokan minn að leyta eins og ég. Honum leyst það vel á að næst reyndi hann að ræna töskunni minn með að bita í ólina og reyna að draga hana burtu frá mér. Að lokum urðum við bestu vinir og hann borðaði saltstangir og súkkulaði kex hjá mér.
Eftir það var haldið á veitingarstað og fengið sér pizzu sem var svo góð enda svaka svöng. Eftir langan og strangan dag vorum við svaka sveitt og klístruð, og áttum 17 klukkutíma lestaferð fyrir höndum til Ungverjaland var ákveðið að skella sér á ströndina þegar klukkan var að verða 21:00 og fara í sturtu. Þar fórum við úr fötunum og skelltum okkur í ískalda sturtu með sjóinn fyrir framan okkur baðaðan í tunglsljósi og ekki skemmdi fyrir frábært útsýni að skutu handa við skerið. Þarnæst var farið í hrein föt og þá kom gömul kona til mín og sagði að ef við hefðum engan stað til að sofa á þá gætum við fengið að sofa heima hjá henni æi fólk getur verið svo vinalegt.
Splitt (þar var alltof mikið af ferðamönnum)
Hluti af höfninni, vantar snekkjurnar sem var sko nóg af
Ein af ströndunum, stórinn var svo flottur, svo tær

Einar Logi að mynda
Flott útsýnið af svölunum hjá okkur
Verið að hvíla sig smá i miðri gönguferð var svo lítið heitt

Góðir Vinir
Besta sturtu sem ég hef farið í.....

Verður ekki flottara útsýnið úr sturtunni
Ungverjaland
Eftir 17klukkutíma lestarferð og þar af 10 tíma svefn komum við LOKSINS til Buddapest, þetta var alltof löng lestarferð. Þar pöntuðum við hostel á lestastöðinni og vorum keyrð þangað. Svo var farið í súpermarket og keypt sér að borða og ég var svo svöng og borðaði svo mikið að næstu klukkutímar fóru í magakrampa ég var eins og vesti róni lá á einhverjum bekk eða götunni alveg að drepast en samt að reyna að harka af mér til að geta notað þennan stutta tíma til að skoða borgina eitthvað. Við löbbuðum því um og að þinghúsinu sem er ekki lítil bygging og turnarnir ótrúlega margir svo lá leiðinn eftir Dóná að flottri brú sem iðaði að lífi þar var verið að selja allskonar dót, mat og fólk að spila og syngja. Við röltum um brúnna og svo heim á hostel. Daginn eftir fórum við í SPA... en það var semsagt heit útisundlaug eða nokkrar þannig og svo fullt af allskonar pottum og gufuböðum inni ekkert ósvipað íslenski sundlaug byggingarnar kannski flottari en íslensku sundlaugarnar hreinlegri og flottari. Í spainu voru fullt að gömlum körlum að tafla og einnig krakkar að tefla við þá frekar flott að sjá þá skemmta sér við þetta. Eftir það leigðum við okkur hjól og hjóluðum aftur að brúnni þar sem gjöf handa mömmu var keypt, Svo var farið í verslunarmiðstöð og eytt peningum þar sem við vorum svo þreytt á að skoða hús og stelpur í Buddapest þar sem við vorum allavega eru bara klæddar eins og maður sé komin á strippstað ekkert smá frakkar.....
Um 3 leytið var haldið út á flugvöll en þar var svo 2 tíma seinkun á fluginu til Kaupmannahafnar og sú bið var löng svo við lentum um 21:30 á Kastrup og áttum svo flug heim til ísland um 7 leytið morguninn eftir.

Ein af brúnnum í Buddapest, það var svaka líf og fjör á henni þetta kvöld
Ég að deyja í maganum fyrir framan ráðhúsið í Buddapest
Danmörk (Kaupmannahöfn)
Gistum um nóttina hjá Rakel, Svein og Fjalldísi. Fjalldís krúttið mitt er orðin svo stór og æðisleg við skemmtum okkur smá saman hoppuðum, horfðum á videó af henni og lásum svo sögu. Eftir 3 tíma svefn var svo haldið til íslands.
Þetta interrail var með því skemmtilegasta sem ég hef gert en ferðabakterían minkar ekki við þetta hún eykst bara og núna er maður bara farinn að skipuleggja næstu ferð í huganum sem verður um eitthvað í þessum svæðum Afríka, Ástralía, Suður Ameríka eða jafnvel Síberíu hraðlestin...??? Hver veit allavega gott að dreyma án drauma er ekkert lif verst að veskið verður aðeins að þykkna áður en næsta ferðalag hefst.
Að lokum þá voru einungis teknar um 700 myndir í ferðalaginu, svo þetta er bara smá sýnishorn i blogginu.
Ísland (30 júlí – 29 águst)
Þar hélt interrailið næstum áfram gisti eina nótt heima fór svo á Sauðarkrók að heimsækja ömmu og afa og var þar eina nótt.
En fór svo í ferðalag með mömmu, pabba og Einari Loga um Íslands eða fórum upp úr Eyjarfirði yfir Sprengisand meðal ágangastaða voru Hrauneyjar, Veiðivötn, Langisjór, Hólaskjól, Ófærufoss í Eldgjá, keyrðum upp með mælifellsjökli að Mælifelli og inn í strút en þar var labbað í strútslaug og farið í bað, síðan var farið í hvanngil og gist þar æðislegur staður og þar löbbuðum við upp á eitt Fjallið og ef ísland er ekki bara fallegt sólsetur með fjallagarðinn á 3 hliðar og jökul á þá 4. Eftir það var farið niður á Hellu í átt að Skógarfossi, safnið á skógum, Dýrhólaey, Jökulsárlóni, Höfn og Egilstaðar leiðin heim og þar með Mývatn. Frábært ferðalag í góðum félagskap.
Heima var svo hitt vini, verið með frændfólki og systkina börnum, nuddað, farið í mat, borðað góðan mat, farið í fótbolta (Logi, Sara og Krulli þið eru æðisleg), á fiskidaginn, í skírn, grillað, spilað, lært að prjóna smá og ekki má gleyma farið í sund og farið í sund með nesti og farið meira í sund fór stundum í sund 2 á dag. Borðaði brynju ís upp að 3 á dag og allavega ein malt drukkin á dag. Þar fyrir utan lærði ég að fara heljarstökk á trampolíni þar sem Sara Frænka var eins og hún væri að þjálfa mig fyrir ólympíuleikana en hún er 10 ára og var með þetta allt á hreinu og Róbert horfði á og hafði ekki mikla trú á frænku sinni.... ég náði ekki að lærði að fara í handalaust handahlaup en það kemur næsta sumar.
Mánaðarfríið á íslandi var æðislegt gott að hafa nógan tíma til að heimsækja fólk og rækta sambandið við litlu krílin sem stækka alltof hratt á meðan maður býr erlendis.

Rebbarnir í Hólaskjóli voru svo sætir og auðvita gat ég ekki staðist þá frekar en önnur dýr

ólýsanlegt bestu mátar.. gat líka klappað honum að lokum, var að spá í að vera þarna eftir

Fjallaferð í fjörður með mömmu, pabba og Maríu Björk þar sem var borðað, kveikt bál, búið til báta, safnað steinum og skemmt sér konunglega.
Að lokum ALLIR að kvitta....!!!!!